Snæfellsnes 6. fl ka

12.08.2011 16:10:44 / 6flokkurkarla

Skallagrímsmóti aflýst!

Vegna dræmrar þátttöku á Arionbankamótið sem átti að vera helgina 20-21 ágúst hafa Skallagrímsmenn ákveðið að fella mótið niður!


Góða skemmtun í Mosó

» 17 hafa sagt sína skoðun

10.08.2011 22:14:26 / 6flokkurkarla

Atlantismótið í Mosó - nýtt!

Mæting á Tungubakka kl 8:00 - Rikki pabbi Benedikts kemur með búningana.

Þau sem eru skráð:
Kristinn Jökull
Bjartur
Benedikt Björn
Anton Ingi
Margeir
Birgir
Bjarni
Björg
Halla
Fehima
María Ósk

Leikjaniðurröðun má sjá á www.afturelding.is en athugið að leikirnir geta breyst :p

» 20 hafa sagt sína skoðun

11.07.2011 13:57:27 / 6flokkurkarla

Nýtt merki!



Nýtt merki Snæfellsnes og mun það prýða nýju búningana.

» 14 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 14:48:03 / 6flokkurkarla

Nýjir keppnisbúningar!

Fótboltasamstarfið á Snæfellsnesi hefur ákveðið að taka upp nýtt kerfi í sambandi við keppnisbúninga.

Við erum að fá nýja búninga og nú munu iðkendur þurfa að kaupa sína keppnisbúninga.  Hver treyja verður merkt með nafni iðkenda og keppnisnúmeri en athugið að hvert númer getur bara verið á einni treyju í hverjum flokki.  Keppnissettið kostar 3000 kr og er í því treyja, stuttbuxur og sokkar! Tilboð þetta gildir til 31.júlí 2011.

 

Nýji keppnisbúningurinn verður til sýnis og sölu á eftirtöldum stöðum:

Í íþróttahúsinu í Ólafsvík (Víkingsbúðinni)föstudaginn 8.júlí og mánudaginn 11.júlí frá kl 9 til 17

Í íþróttahúsinu Grundarfirði þriðjudaginn 12.júlí frá kl 17:30 – 19:00

Í íþróttahúsinu Stykkishólmi miðvikudaginn 13.júlí frá kl 17:30-19:00

 

Hvað þarftu að gera?

Mæta á staðinn til þess að máta og panta.

Setja inná heimasíðuna hjá þínum flokki hvaða númer þú vilt fá. Mundu að skoða vel þannig að það sé ekki einhver annar búin að fá það númer sem þig langar í því aðeins einn í hverjum flokki getur verið með hvert númer. Númerin geta verið frá 1 upp í 99.  Kerfið er þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mæta þegar þið fáið að vita að keppnisbúningarnir eru tilbúnir fá ykkar sett og borga 3000 kr.

 

Treyjurnar eru bláar með smá hvítum röndum. Þær verða merktar með nýju merki Fótboltasamstarfsins á Snæfellsnesi. Styrktaraðilar okkar verða einnig á treyjunum en það eru Landsbankinn og Fiskiðjan Bylgja HF. Þessir búningar eru frá Jako og eru eins og keppnisbúningar Mfl. Víkings.

 

Við vonum að þetta fyrirkomulag leggist vel í ykkur og að allir okkar iðkendur verði komnir í nýjar treyjur í ágúst. Munið að tilboðið gildir til 31.júlí 2011.  Mynd af treyjunni kemur vonandi á síðuna um helgina!

 

Hér fyrir neðan látið þið vita hvaða númer þið óskið eftir að verði á ykkar treyju. Munið fyrstur kemur fyrstur fær!

Ef einhverjar spurningar eru þá er hægt að hafa samband við Eygló í síma 863-0185 eða á netfangið eygloj@simnet.is


» 29 hafa sagt sína skoðun

26.06.2011 19:38:44 / 6flokkurkarla

Samæfing á þriðjudag.

Samæfing verður þriðjudaginn 28.júní kl 19:00 á Ólafsvíkurvelli. Æfingin er í Ólafsvík af því að mótið verður þar.
Munið svo að láta vita í færslunni hér fyrir neðan ef þið komist á Pollamótið :lol:

Gaman að sjá hve margir eru að skoða síðuna;)

» 26 hafa sagt sína skoðun

14.06.2011 11:45:54 / 6flokkurkarla

Pollamót KSI 2011

Pollamót KSI 2011 - okkar riðill verður spilaður í Ólafsvík 30.júní. Leiki A liðs má sjá hér. og B liðs hér.

Þeir sem komast í þessa leiki þurfa að skrá sig hér á síðunni fyrir 26.júní.

Munið svo eftir upplýsingum um Smábæjarleikana:$ á síðunni hjá stelpunum.

» 35 hafa sagt sína skoðun

10.06.2011 14:56:00 / 6flokkurkarla

Smábæjarleikar 2011

Upplýsingar koma á síðuna hjá 6.fl kv  http://6flokkurkvenna.blogcentral.is/
Verið dugleg að fylgjast með.

» 14 hafa sagt sína skoðun

26.05.2011 20:50:03 / 6flokkurkarla

Vísmót Þróttar!

Vísmót Þróttar er sunnudaginn 29.maí og er mæting á Þróttaravöll kl 8:00<img src=" src="http://7flokkurkarla.blogcentral.is/images/smileys/icon_lol.gif" /> og er fyrsti leikur kl 8:00.   LEIKIÐ ER Á GERFIGRASINU
 Leikirnir eru spilaðir á milli 8:30 og 12:00

Skemmtiatriði er kl 12:20 Ingó Veðurguð mætir á svæðið.

Verðlaunafhending hefst að loknum síðasta leik í hverjum flokki fyrir sig þ.e A, B, o.s.frv.

Tímasetningar eru alltaf látnar standast. Mæti lið of seint í leik styttist leikurinn sem því nemur. Pizzu-hléin fara fram í veitingasölunni á hverjum velli fyrir sig.

Þegar síðustu leikjum er lokið fari lið strax á bílastæði fyrir fram félagsheimilið

Munið eftir takkaskóm, legghlífum og Snæfellsnesgallanum (ef þið eigið hann)

Þeir sem eru skráðir eru:

Bjartur
Denys
Anton
Kristinn Jökull
Birgir
Bjarni
Þráinn
Anel
Jóhann Snorri


» 28 hafa sagt sína skoðun

19.05.2011 09:51:43 / 6flokkurkarla

KSI dagur í Grundarfirði

Þriðjudaginn 24.maí verður fótboltadagur á Snæfellsnesi. Við fáum heimsókn frá höfuðstöðfum KSI og munu þeir færa okkur gjöf frá KSI. Einnig munu mæta á svæðið einhverjir landsliðsmenn og/eða konur!

Fyrirkomulag

Þið mætið á Grundarfjarðarvöll kl 16:00 þar munu þjálfarar okkar taka á móti ykkur. Þjálfarar verða búnir að setja upp stöðvar þar sem einhverjar æfingar verða.

Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta.

Það verður einnig hægt að panta og máta Snæfellsnesgallann.

Það væri gott ef þið staðfestuð mætingu þannig að við vissum ca hvaða fjölda við værum að búast við.


» 32 hafa sagt sína skoðun

05.05.2011 09:28:06 / 6flokkurkarla

Faxaflóamótið 2011

Gleðifréttir við verðum með tvö lið og allir komast þá með:lol:  

Mótið er í Akraneshöllinni laugardaginn 7.maí og er mæting kl 11:15 á Akranes
Leiki A liðs má skoða hér  og leiki C liðs hér 

Liðaskipting verður kynnt á laugardaginn.
Munið eftir takkaskóm og legghlífum. Keppnisbúninga fáið þið á staðnum.

Við viljum byðja ykkur um að kvitta hér á síðuna þannig að við vitum að allr séu búnir að sjá þetta. Það þarf líka að senda póst á eygloj@simnet.is ef þið ætlið að vera með:)  þið sem ekki eruð búin að láta vita.

Þeir sem eru búnir að láta vita að þeir mæti eru
Benedikt Björn
Bjartur
Anton Ingi
Kristinn Jökull
Birgir
Þráinn
Kristinn F
Bjarni
Kristmar Helgi
Jóhann Snorri
Árni Ágúst
Sölvi

Góða skemmtun!


» 39 hafa sagt sína skoðun

02.05.2011 16:05:47 / 6flokkurkarla

samæfing

Nú er loks komið að samæfingu.
Æfingin verður á Hellissandsvelli miðvikudaginn 4.maí kl 16:30.

Faxaflóamótið er svo á laugardaginn 7.maí á Akranesi
Leikina má sjá hér 


Gaman væri ef þið settuð inn staðfestinug á mætingu á samæfinguna:lol:

» 39 hafa sagt sína skoðun

18.10.2010 20:51:05 / 6flokkurkarla

Samæfing - uppskeruhátíð

Samæfing og uppskeruhátíð laugardaginn 23.október í íþróttahúsi Snæfellsbæjar

6.fl karla og kvenna mæta kl 11:00. Fyrst verður samæfing og eftir hana fá iðkendur viðurkenningu og veitingar.

Athugið að flokkaskiptingar miðast við skiptinguna í sumar. Í 6.fl eru því krakkar fæddir 2001 og 2000.

Gott er að láta vita hér á síðunni hvort þið mætið eða ekki:d Gott að byrja starx á það að venja sig við síðuna ;)
Takk fyrir sumarið og góðann fótboltavetur!




» 29 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 22:22:33 / 6flokkurkarla

2.sæti á Pollamóti KSÍ. Til hamingju!



Þá er úrslitakeppni B liða Pollamóts KSÍ lokið og okkar strákar höfnuðu í 2.sæti. Til hamingju með þetta strákar! Það voru aðeins 8 strákar sem gátu tekið þátt um helgina og stóðu þeir sig frábærlega vel! Þeir stóðu vel í andstæðingunum og voru ekki langt frá því að vinna en úrslitaleikurinn var á milli Selfoss og okkar stráka. Leikurinn endaði 4-2.


Einhver vandræði eru við að koma stærri mynd inn - þið notið bara stækkunnargler:lol:





» 38 hafa sagt sína skoðun

19.08.2010 20:57:53 / 6flokkurkarla

Pollamót KSÍ á Keflavíkurvelli 21 og 22 ágúst.

B-lið Snæfellsnes komst áfram í úrstlit sem verða á Keflavíkurvelli helgina 21 og 22 ágúst 2010.  Við munum mæta þangað með lið. 
Á laugardagin verða spilaðir 2 leikir

13:20 Breiðablik - Snæfellsnes
14:40 Snæfellsnes - Stjarnan 2

Á sunnudaginn verður spilaður 1 leikur

12:00 KR - Snæfellsnes

Og síðan úrslit eftir það, ekki kominn dagsetning á þann leik.

» 26 hafa sagt sína skoðun

12.08.2010 00:09:56 / 6flokkurkarla

Mótið á laugardag!

Þá er tímasetning klár ( vonum að hún standist) A lið á 1.leik kl 9 og B lið 1.leik kl 9:30 gert er ráð fyrir mótslokum um 13:30!
ATH að mótið er á Tungubökkum! Hvenær þið eigið að mæta kemur síðar í dag en oftast er miðað við klukkutíma fyrir leik;)


Verið vel klæddir því það spáir ekki sól og blíðu:lol: einnig er gott að hafa með sér nesti.


Minnum á að vegna hraðmótsfyrirkomulagsins er ekki haldið sérstaklega utanum stöðu liða í riðlum og ekki verða veitt verðlaun fyrir sæti heldur fá allir þátttakendur samskonar viðurkenningarpening auk annarra gjafa. Úrslit verða þó skráð og aðgengileg á upplýsingatöflu í vallarhúsi (hámark 3 marka munur skráður).


» 30 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  214  Alls: 56489